2. umferðin í Enduro Cross fer fram í Reiðhöllinni í Víðidal (Árbæjarhverfi) laugardaginn 4. desember. Skráning hefur verið opnuð á msisport.is og um að gera að skrá sig tímanlega. Skráningarfrestur er til þriðjudagsins 30. nóvember kl: 21:00
Bent er á að framvegis verður skráningarfrestur í Íslandsmeistaramót MSÍ alltaf til þriðjudags kl: 21:00 vikuna fyrir keppni. Engar undantekningar!
Hvaða vandamál er að hafa þetta opið fram á fimmtudag á tölvuöld?
Það er ekkert vandamál ! Málið snýst um að ljúka skráningu tímanlega þegar um er að ræða Íslandsmót. Keppnishaldari sem vill prenta dagskrá þarf til þess 2-3 daga og gengur þá ekki að listi yfir keppendur liggi fyrir með eins dags fyrirvara. Einnig þarf keppnishaldari að panta verðlaunagripi og í suma flokka næst stundum ekki lágmarksfjöldi keppenda sem er 5.
Það má líka spyrja á móti, hvaða vandamál er að skrá sig 4 dögum fyrir mót ?
Menn geta verið með valkvíða, að bíða eftir varahlutum eða að veðurspáin lagist… 😉
Mér finnst fullkomnlega eðlilegt að menn þurfi að tilkynna skráningu með góðum fyrirvara. Keppnisstjóri þarf að vita hvernig keppni hann er að skipuleggja. Það er dágóður munur á að skipuleggja keppni með 50 keppendum eða 100 keppendum.
Mér finnst alveg merkilegt hvað margir keppendur hér á landi halda að þeir geti haft hlutina eins og þeim hentar.