Eitthvað hefur verið á reiki hvaða dagskrá er í gildi á morgun, en hér má sjá hana fyrir neðan og einnig má ná í hana á vef MSÍ með að smella hér. Skoðun hjóla hefst kl.12:00 og æskilegt að keppendur mæti upp úr kl.11:30. Húsið opnar fyrir áhorfendur og aðstandendur kl.12. Ekki óskynsamlegt að taka með sér hlýjan fatnað, aukateppi og heitt kakó er alltaf vinsælt þegar svo kalt er í veðri. Fjölmennum svo öll í Reiðhöllina og sjáum frábæra keppni og nýjan Íslandsmeistara krýndann í fyrsta sinn í endurocrossi.
Hér er svo uppröðun í riðla á excel skjali
http://www.motocross.is/wp-content/uploads/2011/02/EnduroCrosskeppni_5_2_11.xls