
Fyrsta umferðin í Íslandsmótinu í Enduro Cross Country fór fram í dag á Bolaöldusvæðinu. Íslandsmeistarinn Kári Jónsson hóf titilvörnina með góðum sigri en fékk nokkuð óvænta mótspyrnu frá Eyþóri Reynissyni sem hingað til hefur látið motocrossið hafa forgang. Íslandsmeistarinn í motocrossi, Aron Ómarsson varð annar og Daði Erlingsson í þriðja í ECC1 flokknum. Eyþór Reynisson sigraði í ECC2, Bjarki Sigurðsson annar og Haraldur Örn Haraldsson þriðji.
Í B-flokknum voru það #12 Guðbjartur Magnússon og #162 Árman Örn Sigursteinsson sem voru í baráttu en þeir unnu sitt hvora umferðina en í 3. sæti var #215 Ingi Þór Ólafsson. Í fyrri umferðinni þá var Ármann 6 sekúndum á undan Guðbjarti. Í 40+ þá var það #45 Magnús Guðbjartur Helgasson sem vann báðar umferðirnar í 2. sæti var #72 Hjörtur Pálmi Jónsson og #0 Ragnar Ingi Stefánsson var 3. en það voru sömu úrslit í báðum umferðum. En það má segja að þeir feðgar Magnús og Guðbjartur hafi átt B-flokkinn.

Í kvenna flokki var það #34 Signý Stefánsdóttir sem sigraði og önnur var #31 Aníta Hauksdóttir en þær unni sitt hvora umferðina í þriðja sæti var svo #132 Karen Arnardóttir. Tveir keppendur voru í B-85 en #671 Einar Sigurðsson var á undan #20 Viggó Smára Pétursyni. Gunnar Sölvason og Atli Már Guðnason unnu báðar umferðirnar í tvímenningi.
Í ár var farið aftur í tvisvar sinnum 90 mínútur í meistaraflokki en nýbreytni var að allir flokkarnir voru nú ræstir saman (innan mínútu) sem gerði það að verkum að fyrstu menn í meistaraflokki byrja að fara framúr hægustu B- flokks ökumönnum á öðrum hring. Einnig var notað sitthvort tímatökukerfið fyrir meistaraflokkinn og hina flokkana og koma því nánari úrslit hér á tveimur linkum
Meistaraflokkar og tvímenningur





Myndir: Agnar Einarsson
Þetta var flott keppni, ég tók nokkrar myndir og hægt að skoða þær hér http://dori.vefalbum.is/index.php/2011/1-umfer-Enduro-Bola-ldum-14-ma
Frétt um keppnina kemur í íþróttatíma RÚV í kvöld.