Það var gaman að sjá hversu ánægðir ökumenn voru í Álfsnesbraut í dag. Allir himinlifandi með útfærslurnar sem Reynir var að setja í brautina. Svo ekki sé talað um að keyra í moldarbraut. Minni á miða eða kort í brautina, annað er bannað.
Opnunartímar Brauta hjá VÍK:
Opnunartímar MX brauta í Bolaöldu:
- Þriðjudagar 16-21
- Fimmtudagar 16-21
- Laugardagar 10-17
- Sunnudagar 10-17
- Lokað í mx-braut mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
- Endúróbrautin er alltaf opin.
Opnunartímar í Álfsnesi
- Mánudagar 16-21
- Föstudagar 16-21
- Laugardagar 10-17
- lokað aðra daga Myndir frá opunardeginum HÉR.
Vááá rólegur á fáranlegum opnunartímum í Álfsnesi!!!
ja eg er sammála
Sammála !!!
er Álfsnes lokuð á morgun ?
álfsnes á að vera opin oftar, skemtilegasta braut á höfuðborgarsvæðinu! má maður ekki bara mæta utan opnunar tíma?
finnst þetta vera of fáir dagar það er ekki eins og það sé verið að vinna brautina á þeim dögum sem hún er lokuð. ok ég get skilið það að það þarf að vinna hana en það þarf ekki 3 daga til að vinna hana mið og fim væri flottir dagar til að loka og laga brautina.
ég er að tala um álfsnes 😉 gæti ekki verið meira sama um cocopuffs bolöldu