Já það er komið að skemmtilegustu keppni ársins sem er styrktarkeppni fyrir Íslenska landsliðið í Motocross sem keppir á Motocross of Nations í Frakklandi 17&18 September.
Keppnin verður haldin í nýuppgerði braut Selfyssinga á Selfossi. Allur ágóði af keppnini rennur beint til Íslenska liðsins.
Keppt verður í 5 flokkum og verður aðalatriðið að hafa gaman af deginum og sýna strákunum í landsliðinu að við stöndum á bakvið þá.
- MX Open: Opinn flokkur MX1-MX2-Unglingaflokkur
- MX85 + kvenna: Mx kvenna – 85kvk – 85 KK
- MX B: Bestu úr 85cc KK, +40
- C Flokkur: Fyrir þá sem eru að keppa í fyrsta skipti
- H(eiðursmenn)a: í þennan flokk má ekki skrá sig ef viðkomandi hefur keppt á Íslandsmóti sl tvö ár.
Keppnin fer fram á laugardaginn milli klukkan 10 og 15. Hver flokkur keppir í 2 X 12mín. Keppnisgjald er 5.000 á mann óháð stærð eða aldri.
Í lokin verða öllum keppendum boðið að vera með í “Tvímenningsmoto”. Keppnisstjórn velur tvo saman í lið, vanan og óvanan, og hjóla þeir í 45 mínútna keppni. Hver keppandi hjólar tvo hringi og svo er skipt.
N1 / Nítró ætlar að styrkja keppnina með því að lána keppendum sem ekki eiga senda en þó þarf að gefa upp kortanúmer fyrir sendinum sem tryggingu ef hann skyldi týnast eða ekki skilað.
Skráning hefst eftir helgi.
Vonumst til að sjá sem flesta,
Landsliðið
Fá yngri iðkendurnir að keppa í c hóp eða eru þeir ekki með?
Yngri iðkendur? (hvaða aldur?)
85hjól og kvennaflokkur keyra saman
Ég var að spá í 65cc hópurinn
Já því miður hafa þeir ekki keppnisrétt. Krakkarnir þurfa að vera orðnir 12 ára og þurfa keyra 85cc.
Það er barnabraut á staðnum sem þið getið hjólað í meðan á keppnini stendur.