Bryndís Einarsdóttir heldur til Svíþjóðar á morgun en fimmta umferðin í sænska meistaramótinu fer fram í Tomelilla brautinni um helgina. Bryndís er eins og stendur í 5.sæti í keppninni en nokkuð langt er í sætin þar fyrir ofan. Sjötta og síðasta umferð ársins fer svo fram í Uddevalla um næstu helgi.
Við munum fylgjast með Bryndísi hér á motocross.is um helgina.
Vonum að hún nái loksins á pall 🙂
Bryndís endaði fjórða í qualifying í dag. Race-ið er á morgun