Hver hefði trúað því að það væri hægt að keppa í krakka- og motokrossi og enduro 19. nóvember? Allar aðstæður voru með besta móti.
Blæjalogn og 4-5 stiga hiti tók á móti keppendum í gærmorgun. Fyrst á dagskránni var krakkakrossið og þar kepptu 10 sprækir krakkar um glæsileg verðlaun sem Pálmar hafði útvegað hjá hinum ýmsu styrktaraðilum s.s. Púkinn, Nítró, Moto, Arctic Trucks, JHM-Sport og Honda-Bernhard. Við þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn en að auki fengu allir krakkar medalíur frá VÍK.
Hér eru sigurvegararnir í krakkakrossinu:
í 50 cc flokki, sigraði Eiður Orri, Víðir Tristan varð annar og Anna Margrét í þriðja sæti. Í 65cc flokki sigraði Guðlaugur, annar varð Gabríel, þriðji varð Mikael, fjórði var Óliver og Fannar Freyr varð fimmti. Í 85cc flokki varð Davíð í fyrsta sæti og Hans Jakob í öðru. Þetta eru klárlega framtíðarökumenn sportsins!
Í motokrossi var keppt í 2 flokkum og voru um 35 manns skráðir til keppni. Í A flokki sigraði Atli Már Guðnason, Viktor Guðbergsson var í öðru sæti og Örn Sævar Hilmarsson varð í þriðja sæti. Viktor átti reyndar besta tímann í brautinni 1:59.03 og til að jafna keppnina var hann látinn starta keppninni og taka 10 armbeygjur áður en hann mátti hlaupa að hjólinu og fara af stað 🙂
Í B flokki varð Birgir Georgsson í þriðja sæti, Ágúst H. Björnsson varð annar og Heiðar Örn Sverrisson sigraði eftir flottan akstur í báðum motoum. Í 85 flokki varð Baldvin Egill Baldvinsson í þriðja sæti, Gyða Dögg Heiðarsdóttir í öðru og Oliver Örn Sverrisson sigraði.
Nánari úrslit úr motokrossinu koma á www.mylaps.com – í augnablikinu er þó eitthvað vesen á nettengingunni á tímatökuvélinni en það leysist vonandi.
Þegar motokrossinu var lokið tók við stutt keppni í enduro/endurokrossi. Um morguninn fór öflugur hópur í að setja upp nokkrar þrautir við hliðina á startinu. Stauraþrautir, stór steypurör, dekkjaþraut ofl. var komið fyrir með hraði og verða á svæðinu til frambúðar. Brautin lá um slóðana á neðra svæðinu og Guggi renndi einn prufuhring með keppendur sem var raðað saman þannig að A og B keppendur voru dregnir saman. Um kl. 15 hófst keppnin með látum og keyrðu keppendur einn hring á mann. Ingvi Björn og Þorbjörn tóku strax forystuna og létu hana ekki af hendi. Gunni málari og Ævar Sveinn Sveinsson urðu í öðru sæti þrátt fyrir ótímabærar kaffipásur þess síðarnefnda 🙂 Í þriðja sæti urðu svo Jósef og Heiðar Örn.
Við þökkum öllum sem komu og tóku þátt kærlega fyrir komuna og frábæran dag. Sömuleiðis öllum sem hjálpuðu til, settu upp endurokrossþrautirnar og gerðu daginn jafn vel heppnaðan og hann var.
Kveðja, stjórn VÍK
Enduroúrslitin er hér fyrir neðan:
Overall úrslit | |||||
Sæti | Stig | Rásnr og nafn | Tími | Flokkur | Hjól |
Eknir hringir: 6 | |||||
1 | 100 | 13-Ingvi Bjorn og thorb | 101:14.16 | 2 | |
2 | 85 | 6-Gunnar B og Aevar Sv | 102:00.35 +0:46.19 | 2 | |
3 | 75 | 1-Josef og Heidar Orn | 102:11.17 +0:57.01 | 2 | |
4 | 67 | 7-Orri og Oskar | 105:48.57 +4:34.41 | 2 | |
5 | 60 | 3-Haukur #10 og Finnur | 107:36.50 +6:22.34 | 2 | |
6 | 54 | 15-Gunni malari og Trau | 107:39.52 +6:25.36 | 2 | |
7 | 49 | 16-Atli Mar og Oliver | 111:14.88 +10:00.72 | 2 | |
8 | 45 | 12-Biggi malari og Skul | 111:51.08 +10:36.92 | 2 | |
9 | 42 | 17-Haraldur Gunn og Lei | 113:16.54 +12:02.38 | 2 | |
Eknir hringir: 5 | |||||
10 | 41 | 2-Borkur og Tedda | 105:57.41 | 2 | |
11 | 40 | 4-Gatli og Bjork crazy | 111:23.45 +5:26.04 | 2 | |
12 | 39 | 19-Hjortur og Jon Snaev | 113:22.36 +7:24.95 | 2 | |
Eknir hringir: 4 | |||||
13 | 38 | 21-Petur P og Gyda | 98:36.41 | 2 |
Fyrsti hringur er reyndar ekki réttur þar sem keppnisklukkan var svo spennt að hún fór af stað ótímabært ca 28 mínútum fyrir keppni.
Millitímar | |||||||
Sæti | Rásnr og nafn | ||||||
1 | 13-Ingvi Bjorn og thorb | 40:13.98 | 12:57.03 | 10:50.43 | 13:19.33 | 11:04.54 | 12:48.85 |
2 | 6-Gunnar B og Aevar Sv | 42:44.42 | 11:22.94 | 10:27.14 | 14:05.80 | 10:49.00 | 12:31.05 |
3 | 1-Josef og Heidar Orn | 42:21.52 | 11:37.33 | 12:00.46 | 11:52.11 | 12:23.91 | 11:55.84 |
4 | 7-Orri og Oskar | 41:26.76 | 13:20.48 | 11:20.69 | 13:21.97 | 11:48.26 | 14:30.41 |
5 | 3-Haukur #10 og Finnur | 41:05.28 | 13:54.26 | 11:10.42 | 14:49.91 | 11:24.48 | 15:12.15 |
6 | 15-Gunni malari og Trau | 42:10.04 | 12:53.68 | 12:33.30 | 13:25.87 | 13:12.08 | 13:24.55 |
7 | 16-Atli Mar og Oliver | 40:34.36 | 15:05.50 | 11:21.24 | 15:55.04 | 11:34.54 | 16:44.20 |
8 | 12-Biggi malari og Skul | 41:38.18 | 15:36.75 | 12:10.73 | 14:03.71 | 13:03.30 | 15:18.41 |
9 | 17-Haraldur Gunn og Lei | 45:07.23 | 12:39.89 | 13:19.39 | 13:45.47 | 14:49.30 | 13:35.26 |
10 | 2-Borkur og Tedda | 47:16.47 | 16:06.14 | 13:24.32 | 16:59.04 | 12:11.44 | |
11 | 4-Gatli og Bjork crazy | 41:31.75 | 21:45.47 | 11:45.58 | 24:28.87 | 11:51.78 | |
12 | 19-Hjortur og Jon Snaev | 54:31.64 | 9:59.18 | 17:04.53 | 12:17.65 | 19:29.36 | |
13 | 21-Petur P og Gyda | 43:53.57 | 22:19.58 | 13:13.95 | 19:09.31 |
Frábær keppni og ótrúlegt að það sé enn nóvember….takk fyrir mig:-)
Átti náttúrulega að vera “ ótrúlegt að það sé kominn nóvember “ hehe..:-)
Takk fyrir frábært framtak um helgina. Þetta var alvega rosalega gaman. Vitið þið um einhverjar fleiri myndir ?
kv
Finnur #971
Takk sömuleiðis. Mig minnir að Sverrir hafi verið þarna með myndavélina á lofti meira og minna allan daginn. Hann er greinilega upptekinn í öðru en að koma þeim á vefinn – Sverrir, drífa sig! 🙂 Var að bæta úrslitunum úr krakkakrossinu inn í greinina. Flottir krakkar
Jæja keppnin er loksins komin á MyLaps.com – http://msisport.is/pages/urslitogstada/
Kv. Keli