Ný verðskrá var samþykkt á stjórnarfundi í VÍK um daginn og lækka árskortin um 2000 krónur frá því í fyrra.
Sala árskortana hefst hér með (smellið á lesa meira) og þau gilda alla daga eftir auglýstum opnunartíma hér á síðunni. Verð fyrir stórt hjól er 22.000 krónur og verð fyrir lítið hjól er 10.000 krónur.
Kortin verða send í pósti til viðkomandi þannig munið að skrifa rétt heimilisfang eftir að hafa greitt. Þeir sem vilja nýta sér fjölskylduafsláttinn þurfa að hafa samband við birgir@prent.is
Nánari upplýsinar um brautirnar er að finna undir BRAUTIR í valmyndinni í hausnum hér á síðunni.
Verðskrá 2012:
|
Opnunartímar MX brauta í Bolaöldu:
|
Nýjung: Límmiði á hjálma fylgir hverju félagsgjaldi – félagsmenn setja límmiða á hjálminn og fá frítt í alla slóða á Bolaöldusvæðinu.
Afslátturinn er veittur við kaup af fleiri en einu korti: |
Verðdæmi Ef keypt eru 3 kort – afsláttur af öllum kortum 10% |
2 kort = 5 % afsláttur 3 kort = 10% afsláttur 4 kort = 15% afsláttur Stórt hjól 22.000 kr. |
Lítið hjól 10.000 kr. Lítið hjól 10.000kr. Samtals 42.000 kr. afsláttur -4.200 kr. Þú greiðir 38.800 |
Árskort í brautir VÍK árið 2012 Skrifið nafn, kennitölu og heimilisfang í Athugasemdir á næstu síðu (eftir að hafa ýtt á GREIÐA) |
Árskort í brautir VÍK árið 2012 Skrifið nafn, kennitölu og heimilisfang í Athugasemdir á næstu síðu (eftir að hafa ýtt á GREIÐA) |
Það þarf líka að biðja þá sem selja miðana á Olís að fylgjast með þessu, ætti maður ekki að þurfa sýna félagskirteini til að fá miðann á 1.200.- ?
Hvar fær maður síðan límmiðan sem fylgir félagsgjaldinu?
Góð spurning með límmiðann, fær maður hann sendan í pósti eða ….
Sælir, það er ekki alveg niðurneglt. Þeir verða líkast til sendir í pósti en mögulega afhentir í Bolaöldu hjá Garðari. Kv. Keli