Skráningarfrestur í fyrsta mótið af þremur í Suzuki bikarmótaröðinni rennur út í kvöld kl.21:00, eftir það verður ekki hægt að skrá sig. Keppnin fer fram á fimmtudaginn 17 maí, sem er almennur frídagur, ef fólk skyldi ekki vita það. Skráning er á vef MSÍ, www.msisport.is, fyrir utan þá sem ætla að skrá sig í nýliðaflokk en þá er nóg að senda póst á netfangið motocrossumfs@gmail.com. Nú eru um þrettán keppendur skráðir og ég hreinlega neita að trúa því að þátttakan verði ekki meiri loksins þegar sett er á laggirnar alvöru bikarmótaröð. Búið er að gera miklar breytingar á brautinni og taka út kafla undir startið sem snýr nú vestur plús að búið er að setja upp ráshlið af dýrari gerðinni, ekki ósvipuð og upp í Bolaöldu fyrir utan að startið er í mold en ekki steypu. Einnig hefur brautin verið lengd nokkuð sem er breyting frá því sem var. Það er fín spá fyrir fimmtudaginn nánast blankalogn og eru hitatölur á uppleið en spáin hljóðar upp á ca 8°C. KOMA SVO!
2 hugrenningar um “Skráningarfrestur í fyrsta mótið af þremur í Suzuki bikarmótaröðinni rennur út kl.21 í kvöld…”
Skildu eftir svar
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.
Er ekki hægt að birta dagskrá fyrir daginn?
Hún var birt sem excel skjal á motosport.is en ég skal setja hana inn hér á eftir