Skv. nýjustu fréttum eru aðstæður í Bolaöldu hreint frábærar. Rigningin undanfarna daga hefur gert svæðinu mjög gott og rakastigið í brautinni er eins og það gerist best. Í gær voru farnir að mynda röttar og frábærar línur víða. Garðar og Aron eru búnir að vera að herfa og grjóthreinsa og brautin því með allra besta móti.
Kíkiði endilega á þá, kaffi á könnunni og alles.
2 hugrenningar um “Bolaalda í flottu standi í dag!”
Skildu eftir svar
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.
En hvenær opnar Álfsnes?
Brautin var hreint út sagt frábær í kvöld og allt mjög snyrtilegt á svæðinu. Virkilega gaman þarna í kvöld og aðstæður eins og best verður á kosið