5. og 6. umferðirnar í Íslandsmótinu í Enduro Cross-Country fara fram um helgina. Keppt verður í fyrsta skipti á austurlandi í Íslandsmóti og verður gaman að sjá hvernig austfirðingum tekst til að gera braut og framkvæma keppnina. Ekki skulu menn búast við einhverju slori, því austfirðingar hafa haldið vélsleðakeppnir með miklum sóma um árabil.
Keppnin fer fram í landi Stóra Steinsvaðs sem er u.þ.b. 2o km utan við Egilsstaði.
Skráningu lýkur að venju á þriðjudaginn klukkan 21 á www.msisport.is
Facebook event fyrir keppnina er hér
Landakort að svæðinu má sjá hér fyrir neðan
Ef menn og konur vantar gistingu fyrir austan þá mæli ég með gistingunni á Skjöldólfsstöðum,Háaskála gengið var í hjólatúr þarna fyrir nokkrum dögum,frábær þjónusta,gott verð,sundlaug,heiturpotturgóður matur.