Það varð enginn fyrir vonbrigðum sem mættu í keppnina í Álfsnesi í gær. Sól, nánast logn og brautin í frábæru standi.Reynir var búin að leggja mikla vinnu í brautina í vikunni þar sem hann breytti brautinni rosalega og bætti við nýjum köflum. Brautin gat því tæplega verið betri. Yfir 60 keppendur voru skráðir til keppni í nokkrum flokkum, C flokkurinn var gríðarlega flottur og gaman að sjá svona mörg ný andlit að keppa, við vonum að þeir haldi áfram að keppa á næstu árum.
Landsliðsmennirnir sýndu kynþokkafulla takta í startinu þar sem þeir sáum 5/15 sek spjaldið og að fella hliðin. Að því loknu máttu þeir hlaupa að hjólunum sínum og elta uppi hópinn.
Niðurstaða dagsins var frábær keppni í frábæru veðri og í frábærri braut.
Landsliðið fær öll keppnisgjöld í sinn skerf eða um 250.000 kr. koma sér örugglega vel í ferðasjóðinn.
Bestu þakkir allir keppendur, áhorfendur, Reynir, Keli, Guggi, Guðný, Dóri, Jón, Beggi, Svenni, Særós, Brjálaða Bína!! og allir aðrir sem hjálpuðu til.
Landsliðið þakkar fyrir sig !!!