Laugardaginn 24 ágúst verður haldin fjórða umferðin í Íslandsmeistaramótinu í motocrossi. Er þetta í fyrsta sinn sem þessi keppni er haldin í braut MotoMos en brautin varð lögleg til keppni til Íslandsmeistara í fyrra. Af því tilefni verður frítt inn á svæðið og geta Mosfellingar og nærsveitarmenn komið og horft á bestu ökumenn landsins í motocrossi spreyta sig í krefjandi braut. Gert er ráð fyrir hátt í eitthundrað keppendur, allt frá 85cc flokki og upp í MX Open sem er meistaraflokkurinn í motocrossinu.
Samhliða því að þessi umferð fer fram í MotoMos að þá verður landslið Íslands valið og tilkynnt í lok keppninnar, en landsliðið í motocrossi mun taka þátt fyrir Íslands hönd í keppninni „Motocross of Nations“ sem er oftast skammstafað MXON. Þrír keppendur eru valdir og því er mikið undir hjá þeim sem hafa áhuga á að fara og margir um hituna.
Ef þú hefur áhuga að koma og sjá bestu ökumenn landsins keppa í einu af flottasta brautarstæði landsins, að þá mætir þú upp í MotoMos ekki seinna en kl.12 en þá hefst aðalkeppnin að undangenginni tímatöku. Ef þú ert ekki klár á hvar brautin er, að þá er þetta eins og fara inn í nýja íbúðarhverfið á Leirtungum í Mosfellsbæ og í stað þess að fara út úr hringtorginu á þriðja afleggjara að þá ferðu út á fyrsta afleggja á hringtorginu og í átt að Ístakssvæðinu, þ.e. beint austur. Fjótlega eftir að þú nálgast svæði Ístaks, að þá sést í malarveg á hægri hönd á milli trjánna og beygjir þú út á þennan malarveg og heldur áfram og þá dettur þú beint inn á sjálfa brautin. Hér má sjá link á brautarstæðið sjálft og kort með að smella hér.
Skráningu í keppnina lýkur í kvöld klukkan 21 á vef MSÍ.