Í dag var fjórða skiptið í röð sem þessi keppni er haldin og við fáum fullkomið veður, sól, logn og brjáluð blíða með fullkomnu rakastigi í brautinni. Það voru 39 keppendur sem tóku þátt í keppninni og skemmtu sér stórkostlega. Röggsöm stjórn Hjartar Líklegs, flott braut og fullkomið alvöruleysi einkenndi keppnina og voru allar reglur háðar geðþótta – bara gaman. Halli Björns #82 ásamt Pálma Blængs urðu fyrstir, Sebastían og Eyþór urðu í 2. sæti og Róbert Knasiak og Brynjar í 3. sæti. Keppendur upp í 10. sæti fengu afhent verðlaun frá hinum ýmsu styrktaraðilum s.s. Suzuki umboðinu, JHM-sport, Arctic Trucks, Ásbirni Ólafssyni, Snæland video, og Jóa Kef (2 x svokölluð kryppurétting). Við þökkum þeim kærlega fyrir það og ég gleymi vonandi engum!
Takk fyrir daginn allir sem mættu og Hjörtur fær sérstakar þakkir fyrir samstarfið 🙂
Nánari úrslit hér:
Takk fyrir frábæran dag 🙂