Við lofuðum frekari fréttum í kvöld af enduroinu og hér kemur hluti 1.0. MSÍ hefur ákveðið að breyta keppnisfyrirkomulaginu á endurokeppnum fyrir sumarið. Helstu breytingar eru:
GFH Meistaraflokkur: 75 mínútna keppnistími, 2 umferðir yfir daginn eins og áður
GFH Tvímenningur: 74 mínútna keppnistími og tvær umferðir, hámark 2 hringir á mann í einu en allir geta tekið þátt þe. keppendur í Motocrossi geta sameinast í þennan flokk og tekið létta motocrossæfingu í enduroinu. Áherslan í flokknum er þó eftir sem áður á stemningu og Klaustursfíling þannig að allir alvöru keppnismenn skrá sig að sjálfsögðu í GFH Meistaraflokk.
GFH Enduroflokkur; 45 mínútna keppnistími sem fyrr og tvær umferðir yfir daginn. Aldursskiptir flokkar bæði karla og kvenna, 14-18, 19-39, 40-49, 50+ mv. aldur á líðandi ári. Lágmarksfjöldi í flokk eru 5 keppendur, annars er flokkurinn keyrður með næsta flokk fyrir neðan.
Styttri en erfiðari keppnisbrautir: Styttri hringir, lagt verður upp með að hringurinn verði að hámarki 10-12 mínútur og að áhorfendur geti fylgst með keppninni úr návígi. Keppnin á að vera öllum fær EN í hverri braut eiga að vera 1-2 erfiðar hindranir með skýrum (og lengri) hjáleiðum fyrir þá sem ekki treysta sér erfiðari leiðina.
Seinni hlutinn 2.0 þe. varðandi næsta keppnisstað þe. 12. júlí átti að vera klár í kvöld en því miður hefur ekki náðst að klára formsatriðin ennþá en það gerist væntanlega á þriðjudagskvöldið næsta. Fylgist því vel með, ef allt gengur að óskum verður fyrsta keppnin mögnuð og frábært start á nýju endurotímabili á Íslandi, hvorki meira né minna!
Nánar um nýjar enduroreglur:
1. Keppnisreglur MSÍ fyrir GFH Enduro
- Keppnisfyrirkomulag
1.1. Íslandsmótið í GFH Enduro samanstendur af 2 keppnum eða fleiri.
1.2. Keyrðir eru þrír (3) flokkar:
GFH Meistaraflokkur
GFH Enduroflokkur
GFH Tvímenningur
1.3. Til þess að flokkur eða undirflokkur teljist löglegur þurfa minnst 5 keppendur að skrá sig í viðkomandi flokk.
1.4. Öllum er frjálst að skrá sig í GFH Meistaraflokk. keppendur sem hafa lokið í 1. – 10. sæti í Íslandsmótinu árinu á undan í Meistaraflokk mega ekki skrá sig í GFH Enduroflokk.
- Flokkaskipting:
2.1. Aldurstakmörk vegna vélarstærða: Upplýsingar er að finna í reglugerð 507/2007 um akstursíþróttir og aksturskeppnir með síðari breytingum.
Sjá: http://msisport.is/content/files/public/reglur/B_nr_507_2007.pdf
2.2. Skráðir keppendur í flokki verða að vera fimm (5) að lágmarki svo keppni í flokki fari fram.
2.3. Keppt er í eftirfarandi flokkum:
- GFH Meistaraflokkur
3.1. Vélarstærðir: 122 – 650 cc vélar 2T / 4T
3.2. Dekkjastærð: Afturdekk: 18-19″ tommur – Framdekk: 21” tommur
3.3. Aldur: Frá fimmtánda (15.) aldursári og upp úr.
3.4. Keppnisfyrirkomulag: Ein (1) 75 mínútna umferð + Tvær (2) umferðir á keppnisdag
3.5. Verðlaun: Verðlaun eru veitt fyrir þrjú (3) efstu sæti yfir heildina
3.6. Stigagjöf: Sjá 6.6. stigagjöf.
3.7. Annað: Keppnisstjóra er heimilt að flagga út fyrsta keppanda allt að 2 mín. fyrr til þess að halda dagskrá.
- GFH Tvímenningur
4.1. Vélarstærðir: 122 – 650 cc vélar 2T / 4T
4.2. Dekkjastærð: Afturdekk: 18-19″ tommur – Framdekk: 21” tommur
4.3. Aldur: Frá fimmtánda (15.) aldursári og upp úr.
4.4. Keppnisfyrirkomulag: Ein (1) 74 mínútna umferð + Tvær (2) umferðir á keppnisdag
4.5. Verðlaun: Verðlaun eru veitt fyrir þrjú (3) efstu sæti yfir heildina.
4.6. Stigagjöf Sjá 6.6. stigagjöf.
4.7. Annað:
4.8. Keppnisstjóra er heimilt að flagga út fyrsta keppanda allt að 2 mín. fyrr til þess að halda dagskrá.
4.9. Keppendur í Tvímenning mega ekki aka meira en 2 hringi í einu.
- GFH Enduroflokkur
5.1. Vélarstærðir: 122 – 650 cc vélar 2T / 4T
5.2. Dekkjastærð: Afturdekk: 18-19″ tommur – Framdekk: 21” tommur
5.3. Aldur: Frá fjórtánda (14.) aldursári og upp úr.
Keppt er í eftirfarandi aldursflokkum karla og kvenna:
14-18, 19-39, 40-49, 50+ mv. aldur á líðandi ári
5.4. Ef ekki næst full þátttaka í aldursflokki er flokkurinn sameinaður næsta aldursflokki fyrir neðan.
5.5. Keppnisfyrirkomulag: Ein (1) 45 mínútna umferð + Tvær (2) umferðir á keppnisdag
5.6. Verðlaun: Veitt fyrir 1., 2., og 3. sæti í hverjum aldurshóp, viðurkenningarskjöl eða medalíur
5.7. Stigagjöf: Sjá 6.6. stigagjöf.
5.8. Annað: Keppnisstjóra er heimilt að flagga út fyrsta keppanda allt að 2 mín. fyrr til þess að halda dagskrá.
- Framkvæmd keppni
6.1. Ræsing:
6.1.1. Tíu til tuttugu (10-20) keppendur eru á hverri ráslínu og skal vera eins (1) meters lágmarksbreidd fyrir hvert hjól.
6.1.2. Keppendur skulu drepa á keppnishjólum einni (1) mínútu fyrir ræsingu þegar brautarstjóri / keppnisstjóri gefur merki þar um
6.1.3. Brautarstjóri / keppnisstjóri sýnir keppendum 15 sek. skilti og að því loknu 5 sek. skilti og merki um ræsingu þegar skilti fellur.
6.1.4. Keppandi sem ræsir keppnishjól áður en skilti fellur telst þjófstarta og hlýtur 1 mín. refsingu í formi vítis.
6.1.5. GFH Meistaraflokkur er ræstur fyrstur og GFHE Tvímenningur skal ræstur 1 mínútu á eftir og raðast Tvímenningsflokkur á ráslínu fyrir aftan.
6.1.6. GFH Enduroflokkur skal allur ræstur 1. mínútu á eftir GFH Tvímenning. Uppröðun á ráslínu skal vera eftir aldursröð flokka frá 1. ráslínu, 14-18, 19-39, 40-49, 50+
6.1.7. Uppröðun á ráslínu í öllum flokkum ákvarðast af stöðu í Íslandsmeistaramóti hverju sinni eða eftir lokastöðu ársins á undan.
6.2. Keppnisbraut:
6.2.1. Lengd keppnisbrautar skal vera þannig að bestu menn séu uþb. 10 til 12 mínútur að keyra hringinn að hámarki. Keppnishaldari skal leitast við að aksturstími á hvern ekinn hring passi vel að heildaraksturstíma í viðkomandi flokk.
Keppnisbraut skal vera vel fær öllum keppendum, keppnisbraut getur samanstaðið af Moto-Cross braut, vegum, slóðum léttum þrautum ofl. Keppnishaldari skal leggja braut þannig að hún verði keppendum fær, þó er mælst til þess 1-2 erfiðar hindranir séu í braut með skýrum og vel færum hjáleiðum sem þó lengja brautina fyrir þá keppendur sem velja hjáleiðina.