Eftir langa og stranga fundi hefur stjórn VÍK loksins komist að niðurstöðu með upphaf skráningar í ENDURO – KLAUSTUR 2015 keppnina.
Skráning hefst 8. April kl 20.00. Og að venju verður skráning í gegnum MSÍ kerfið.
Fyrir þá sem eru ekki með dagsetninguna á hreinu þá er keppnin á dagskrá þann 30.05.2015. Sjá má keppnisdagskrá MSÍ HÉR
Þetta verður að vera á hreinu áður en keppendur skrá sig.
1. Greiddur meðlimur í Motocross / Enduro félagi sem er innan MSÍ.
2. Vera með aðgang að skráningarsíðu MSÍ: SJÁ HÉR Um að gera að hafa þetta á hreinu tímalega.
ERTU EKKI BÚINN AÐ GANGA FRÁ FÉLAGSGJÖLDUNUM HJÁ VÍK ÞETTA ÁRIÐ?
ER EKKI MÁLIÐ AÐ SKELLA SÉR Í ÞAÐ NÚNA? SKRÁNINGARSÍÐA HÉR
Það er þannig að félag verður ekki rekið án félagsmanna, sem borga félagsgjöld, sem fara í að reka félagið fyrir félagsmenn.