Sagt hefur það verið um suma að tími sé afstæður. Formaðurinn okkar er einn af þeim og hjá honum er tími ekki vandamál, bara spurning um að framkvæma.
Í tilefni af þjóðhátíðardeginum þá tók áðurnefndur formaður sig til og djöflaðist á traktornum um slóðkerfið í leit af áskorunum og lagfæringum. Og þar sem tími hjá honum er afstæður þá lagfærði hann MX brautina í leiðinni.
Minnum á að það þarf miða eða árskort í slóðakerfið líka. Hægt að kaupa árskort HÉR!!