Bolaöldubrautirnar eru í flottu standi. Pottþéttur raki og Garðar er búinn að skríða um á fjórum fótum til að hreinsa smásteina úr stóru brautinni.
Hvetjum alla hjólara til að nýta sér þá daga sem bjóðast. Þeim fer víst alveg örugglega fækkandi.
Munið eftir miðunum í Olís Norðlingaholti eða Litlu Kaffistofunni.
Brautarnefnd.
Slóðarnir í Bolaöldu eru í frábæru ástandi, einn og einn drullupollur á neðra svæðinu en allt hitt geggjað!!!