Skilaboð frá nokkrum Hörðum.
Ójee…þær mögnuðu aðstæður hafa skapast á Hvaló að vatnið er vel frosið og snjórinn hefur bundið sig við ísinn svo þetta gerist ekki betra fyrir icecross my friends…allir að vinda sér á vetrarbúnaðinn og skottast uppeftir á morg um kl 13.00 t.d Kv vatnanefnd;
Tekið skal fram ef „Málari“ nokkur mætir. Það er ágætt að taka rólegann skoðunarhring áður en blastað er af stað.
Maður þarf ekki að eiga óvini ,þegar maður á svona vini 🙂
Gunni, VINUR!!!!!!!!!!! Þetta var bara VINSAMLEG ábending. En að sjálfsögðu spurning um hvort að þörf hafi verið á henni. 🙂
Fór og mældi þykktina á ísnum þarna í dag og boraði niður á nokkrum stöðum hann mældist um 12 cm þykkur , fór svo og hjólaði þarna í flottu veðri i ca klst ,þannig að það er ok að hjóla þarna núna án þess að fara gegnum ísinn 🙂