Formannafundur MSÍ var haldinn fyrir lokahófið á laugardaginn. 18 manns mættu a fundinn sem var að sögn formanns MSÍ gagnlegur og með góðri samstöðu. Nokkur mál eru í vinnslu og er að vænta niðurstöðu úr þeim flestum fyrir áramót, sumum jafnvel fljótlega. Hér verða talin upp nokkur atriði sem eru í vinnslu og eru misjafnlega langt komin.
- Stefnt er ad því að senda Íslenskt landslið á ISDE sem haldið verður í Finnlandi í ágúst. (6 í hverju liði)
- Keppnisdagatalið verður svipað og í fyrra nema að Sauðárkrókur kemur inn fyrir Ólafsfjörð í motocrossinu. Ólafsfjörður kemur svo aftur 2012.
- Keppnisdagatalið gæti riðlast í ágúst ef landslið fer á ISDE.
- Klaustur verður 21. maí
- 3 endurocross í vetur gilda til Íslandsmeistara 2011
- Keppnisfyrirkomulag í enduro verður breytt. Aftur farið í 2 keppnir á dag en líklega breytt dagskrá innan dagsins frá því sem var áður. Hugsanlega verður C-flokkur kynntur til sögunnar.
- 3 Íscross keppnir eftir áramót með höfuðstöðvar á Mývatni og hugsanlega á Ólafsfirði.
Hvað finnst fólki um þessa punkta?
Verða ekki fleiri MX keppnir??
ég legg til að það verði unglinga flokkur eða 125cc 2t – 250cc 4t flokkur á ísnum.
Ég er ánægður með að ISDE sé á dagatalinu.
Eru okkar strákar ekki líklegri til árangurs í Enduro heldur en MX ?