Það var mikið fjör í Reiðhöllinni í dag. Fullt af upprennandi stjörnum á æfingunum og foreldrarnir líka í uppeldi til að verða mekkar. Það er virkilega gaman að sjá hversu marga upprennandi snillinga við eigum í yngsta hópnum. 85cc hópurinn var flottur og fullt af snillingum þar á ferð, en hefði verið gaman að sjá fleiri þar. Stóru hjólin voru síðasti hópurinn í höllina, þar voru fullt af hormónum á ferð og Guggi líka.( Hormónarnir hjá honum er ekki alveg eins æstir og hjá þeim yngri 🙂 . )
Hvetjum alla til þess að nýta sér þessar æfingar, það þurfa allir leiðbeiningar frá okkar frábæru þjálfurum, Helga, Gulla og Arnari. SJÁ MYNDIR HÉR.
Verða ekki fleiri æfingar í reiðhöllinni fyrir stór hjól? missti af þessari og langar til að prófa.
Fylgjast vel með hér á netinu. Það verður auglýst.