Tekið af motosport.is
Í gær, laugardaginn 29 janúar, fór fram fyrsta umferðin í íscrossi og var hún haldin á Mývatni. Mývetningar kunna þetta alveg og þarf ekkert að fara neinum orðum um framkvæmd mótsins sem tókst í alla staði vel. Það eina sem háði keppendum í dag að það var strekkingur sem hafði áhrif á ökumenn og féllu sumir meira að segja á ráslínu þegar verið var að stilla sér upp sökum vindhviða sem áttu til að skella á keppendum óumbeðnar. Hátt í fjörtíu keppendur voru skráðir og ég gat ekki betur séð en flestir skemmtu sér ágætlega. Kári var alveg með þetta í vetrardekkjaflokknum og var eiginlega aldrei ógnað í dag. Meiri spenna var í opna flokknum þar sem „gömlu brýnin“ Toggi og Raggi áttust við um forystuna og endaði það með því að Raggi hafði þetta. Önnur úrslit voru eftirfarandi:
85cc flokkur:
- Adam H. Jóhannesson
- Kristján H. Garðarsson
- Óliver Ö. Sverrisson
Kvennaflokkur:
- Andrea D. Kjartansdóttir
- Signý Stefánsdóttir
- Ásdís E. Kjartansdóttir
Unglingaflokkur:
- Ingvi B. Birgisson
- Ásgeir Hall
- Ásdís E. Kjartansdóttir
Vetradekkjaflokkur:
- Kári Jónsson
- Daði Erlingsson
- Sigurður Bjarnason
Opin flokkur:
- Ragnar I. Stefánsson
- Þorgeir Ólason
- Steingrímur Ö. Kristjánsson
Því miður meiddist Bryndís Einarsdóttir í tímatökunni og endaði á spítala þar sem henni verkjaði mikið í öxlina. En Bryndís varð fyrir því óhappi að „hi-sæta“ hressilega með fyrrgreindum afleðingum og óskum við henni skjótum bata. Fleiri myndir er hægt að skoða þær með að smella hér.
Nánari úrslit eru á vef MSÍ hér