Kanadíska gleraugnafyrirtækið Zeal Optics hefur í samvinnu við Recon Instruments kynnt til sögunnar gleraugu með innbyggðu GPS tæki. Gleraugun eru fyrst og fremst hönnuð fyrir snjóbretta- og skíðafólk en líklega verður boðið uppá endúró og motocross útgáfu innan skamms. Í gleraugunum er sem sagt venjulegt GPS tæki og svo lítill skjár neðst í þeim. Mjög auðvelt að líta niður á skjáinn og má segja að einföldustu upplýsingar, eins og hraði, sjáist alltaf svipað og í „heads up display“ í orrustuþotum og dýrum bílum.
Á tækinu eru 3 takkar við gagnaugað þar sem flett er á milli mynda sem í boði eru. Hægt er að fylgjast með hraða, hæð, vegalengt, staðsetningu, hitastigi og tíma á auðveldan máta. Þegar ferðalaginu er lokið eru gleraugun tengd við tölvu með USB snúru og hægt að skoða túrinn myndrænt.
Gleraugun vega 257 grömm og batteríið dugar í 7 klst.
Smellið hér fyrir video og frekari upplýsingar
Þetta er magnað. Sástu einhvern verðmiða á þessu dóti?
já, verðið er $500 en það er víst allt að 2 mánaða biðlisti
Já, sæll! En samt, fyrir hjólafíkla og meira til að þá tel ég að þetta væri mun betra en að vera með GPS fast á stýrinu. Þetta er mjög áhugavert og væri gaman að sjá hvernig þetta virkar og reynist í raun við íslenskar aðstæður
Magnað