Svona létt yfirferð yfir helstu hluti sem þurfa að vera klárir á fimmtudaginn.
- Skrá sig í klúbb/Borga félagsgjaldið. VÍK eða einhvern annan klúbb
- Skrá sig á msisport.is kerfið. Nýskráningar fara fram á www.felix.is. Það tekur allt að einn dag að verða virkt þannig að það er best að gera þetta NÚNA
- Búa til lið! Tveggja manna? Þriggja manna? Eða bara að taka sóló?
- Tékka hvort kreditkortið sé í gildi og eitthvað sé eftir af heimildinni.
- Taka frá fimmtudagskvöldið klukkan 22! Þá byrjar skráningin á www.msisport.is
Svo hafið þið 12 vikur til að kaupa hjól og hjálm, merkja gallann, koma ykkur í form, æfa sig að keyra í sandi, panta gistingu og smyrja samlokur.
Nema að brautin sé mikið öðruvísi þá held ég að við getum tekið „æfa sig að keyra í sandi“ út af listanum. Spurning um að bæta við: „læra að fleyta yfir mýrarpitti“
En hvað er keppnisgjaldið?
verður sama keppnisgjald og í fyrra?
Getur enginn svarað þvi hvað keppnisgjaldið er mikið???
Fékk svar frá þeim um að það væri 10.000 eða 12.000 kr væri verið að skoða þetta
Reiknimeistarar VÍK eru sveittir í að reikna út kostnaðinn þessa dagana. Það verður lagt mikið í að gera brautina og aðstöðuna enn betri en í fyrra, þannig að kostnaðartölur verða að vera á hreinu áður en gjaldið er gefið út.
Verður væntanlega ekki undir 10 þús.
Svona hamingja verður varla metin til fjárs.
Mér finnst nú ekki vera árferðið í að hækka gjaldið, ekki hafa launun mín hækkað um 50% á einu ári.
Ég var að fá staðfestingu á því að það sé fundur í hádeginu og þetta ætti því að komast á hreint seinna í dag.
Sælir, keppnisgjaldið hækkar um 25% og verður 10.000 skv. fundi núna áðan. Bæði VÍK og ábúendur á Ásgarði eru að framkvæma mun meira í kringum keppnina og kostnaður allur er mun hærri s.s. nýtt tímatökukerfi, salerni, ýtuvinna í brautinni, startsvæði, stikur og annað sem hefur ekki verið gert áður.
Ef tveir eru saman í liði, þurfa báðir að skrá sig í sitt hvoru lagi,
eða dugar að annar aðilinn skrái liðið (þ.e. báða) ?
PS
Þætti vænt um að fá uppgefinn „link“ á allar upplýsingar um keppnina.
Skráningin er útskýrð í færslunni hér að ofan (einn skráir liðið og sendir tölvupóst með nöfnunum á öllum í liðinu) Sjá hér: http://www.motocross.is/2011/03/klaustur-undirbuðu-skraninguna-vel/
Linkur á allar upplýsingar um keppnina er hér:
http://www.motocross.is/category/keppnir/klaustur-keppnir/
Rétt er að fylgjast með þessum link reglulega fram að keppni því keppnishaldarinn mun birta hér upplýsingar. Áður en skráningin byrjar er von á uppfærðum ítarlegum reglum og fleiri upplýsingum um keppnina eins og framkvæmd í pittsvæði þar sem pitturinn verður í „Formula 1 style“.