Hið árlega Mývatnsmót verður haldið helgina 18-20. mars. Nú er búið að snjóa hressilega og því tilvalið að skella sér í sleðatúr eins og í gamladaga yfir hálendið. Allar nánari upplýsingar um mótið veita Stefán 895-4411 og Kristján 856-1160.
Ekki missa af hápunkti vetrarins, stútfull dagskrá og ný keppnisgrein lítur dagsins ljós, en það er Sno-Enduro.
Skráning er hafin á msisport.is
Dagskrá:
Föstudagur 18.mars
kl.14:00 Samhliðabraut og Fjallaklifur Kröflu
kl. 20:00 Íscross á mótorhjólum -í flóðljósum við Skútustaði
Laugardagur 19.mars
kl. 10:00 Sno Enduro
kl. 15:00 Snocross – Kröflu
kl. 17:00 Ísspyrna við Skútustaði
kl. 19:30 Veisla og verðlaunaafhending í Sel Hótel Mývatn – Hljómsveit og dans fram eftir nóttu…
Akstursíþróttafélag Mývatnssveitar
er þetta sno-enduro á sleðum ?
Já, enduro á sleðum. Hópstart og ekið í 2 x klst. Hringurinn er c.a. 10 km.