Eins og menn vita fór fyrsta umferðin í Íslandsmótinu í Ískrossi fram á Leirutjörn við Akureyri um þarsíðustu helgi, en það hefur ekki gengið þrautalaust að ná keppni á suð-vesturhornið vegna veðurs og aðstæðna. MSÍ leggur mikla áherslu á að Íslandsmótið verði klárað, en til þess þarf að keyra a.m.k. þrjár umferðir. Í ljósi þess mikla ferðakostnaðar sem við búum við í dag, þá hafa MSÍ og Akstursíþróttafélag Mývatnssveitar komist að samkomulagi um að 2. og 3. umferð Íslandsmótsins í Ískrossi fari fram á Mývatni helgina 17-18 mars n.k.
2. umferðin verður keyrð laugardaginn 17. mars á Stakhólstjörn og 3. umferðin verður svo keyrð sunnudaginn 18. mars, líklega í Álftabáruvogi.
Þessa helgi fer fram hið margumtalaða Mývatnssmót, sem er ein allsherjar vetraríþróttaveisla.
Dagskráin verður á þessa leið:
Föstudagurinn 16/3
- 14:00 Samhliðabrautakeppni á vélsleðum við Kröflu
- 16:00 Fjallaklifur (Hillcross) á vélsleðum við Kröflu
- 20:00 Snjóspyrna á vélsleðum við Skútustaði
Laugardagurinn 17/3
- 09:00 Ískross á vélhjólum við Skútustaði (2. umf. Íslandsmótsins)
- 14:00 Sno-Crosscountry á vélsleðum (2. umf. Íslandsmótsins)
Sunnudagurinn 18/3
- 10:00 Ískross á vélhjólum við Skútustaði (3. umf. Íslandsmótsins)
Verið velkomin í Mývatnssveitina. F.h. stjórnar MSÍ og AM Stefán Gunnarsson