Eins og sést á myndunum hér fyrir neðan þá er þetta m.a ein af ástæðunum fyrir því að ég er í þessu sporti. Það er þvílíkur tegundarígur á milli manna og jafnan hart barist í brautinni þegar það ber uppá, menn jafnvel kítast þegar svoleiðis gerist. En þegar einhver lendir í vandræðum hlaupa allir til, alveg sama á hvaða tegund menn aka um á. Aron Ómars #66 lenti í því s.l Laugardag að slíta keðju í upphafi á tímatökunum. Það var ekki að spyrja að því, það komu menn úr Honda liðinu, KTM liðinu, Husqvarna liðinu, Kawasaki liðinu, Yamaha liðinu og að sjálfsögðu Suzuki liðinu og lögðu hönd á plóginn til þess að Aron kæmist út aftur til að klára tímatökuna. Gaman saman.
Þakka Boggu Ómars fyrir myndirnar.
Óli Gísla.