Það er vægast sagt hriklega flott spá fyrir síðustu umferð Suzuki bikarmótsins sem fer fram í MotoMos á laugardaginn. Spáð er glampandi sól, ekki ský á himni og því glampandi sól. Já, veðurguðinn ætlar að skarta sínu besta á keppnisdag. Verið er að taka brautina hressilega í gegn og lofar Balli, Snorri og þeir sem eru að vinna á ýtunni að hún muni líta hrikalega vel út. Skráning hefur farið ágætlega af stað og nú þegar eru nokkrir komnir í C-flokk sem sést ekki á vef MSÍ þar sem það er skráð með því að senda póst beint á MotoMos. SKRÁNING LOKAR KL.21 Í KVÖLD Á VEF MSÍ en besta uppskriftin af eðal laugardegi er að keppa á laugardaginn í bikartmótinu og fara svo á menningarnóttina í bænum. Gerist ekki betra. Koma svo, skrá sig og hafa gaman af þessu og gera laugardaginn eftirminnilegann með þátttöku.