Það er ekki ofsögum sagt að gamli VÍK traktorinn sé reynslumikill enda margir höfðingjar farið um hann höndum. Í dag er hann í góðum höndum VÍFA sem hafa strokið honum mikið og gert vel við hann. Þó er það ekki svo að hann geti allt eins og sjá má á mynd frá VÍFA mönnum í dag. Mikil rigning hefur plagað skagamenn sem aðra hér á vesturhelmingi landsins og brautin þeirra mjög blaut.
Haha það á greinilega að taka allt útúr þessum höfðingja 😉