Veðrið lék við keppendur í 2. umferð Íslandsmótsins í enduro sem fram fór á Egilsstöðum í gær. Á tímabili leit út fyrir að veðrið yrði hreinlega of gott og að ryk myndi hafa áhrif á keppnisdag. Aðfararnótt laugardags gerði Austfjarðaþokan vart við sig og kom nægilegum raka í brautina til að dempa mesta rykið. Brautin var nánast sú sama og í fyrra og var orðin nokkuð grafin og reyndist mörgum ansi snúin.
Kári Jónsson hélt uppteknum hætti og rúllaði hreinlega upp báðum umferðum með þá félaga Ingva Björn og Guðbjart í humáttina á eftir sér án þess þó að þeir næðu nokkurn tímann að ógna forystu Kára. Keppnin gekk vel og stórslysalaust fyrir sig og heimamenn stóðu sig vel í keppnishaldinu. Helstu úrslit eru hér á eftir:
Sælir
Þsð vsntar stigin hans Viggó #20 í heildarúrslitin allar umferðir 🙂
Kveðja Pétur #35
Móttekið, næ ekki að breyta þessu núna en asap. Kv. Keli