Bolaöldusvæðið OPNAR á morgun, Laugardag, kl 13:00
Það er búið að vinna töluvert í brautunum og eru þær allar nokkuð góðar. EN!!!!!!!!! Fyrir þá duglegu er mæting kl 11, reyndar þurfa þeir aðeins að hjálpa okkur fyrst við að hreinsa nokkra steina úr brautinni. Í staðinn fá þeir líka að keyra í brautinni frá 12:00-13-00.
Almenn opnun er kl 13:00
Slóðakerfið er því miður ekki ALLT tilbúið í opnun. En við ætlum að opna neðra svæðið fyrir umferð.
Ekkert gjald er í barnabrautirnar en 1000 kr dagpassi fyrir motocross og slóðakerfið. ATH ENGINN MIÐI Á HJÓlI þýðir brottvísun af svæðinu. Miðar fást í Olís Norðlingaholti sem og í Litlu Kaffistofuni.
Árskortin eru að komast í sölu og er sama lága gjaldið enn í boði kr 12.000 fyrir brautar og félagsgjald. Nánar um það bráðlega.