KLAUSTUR 2015. MINNISPUNKTAR
- ATH að einungis verður skaffað eitt límmiðasett á eitt hjól fyrir hvern keppanda. Hægt er að panta aukasett hjá Merkistofunni gegn sanngjörnu gjaldi.
- Skoðun – pappírsfrágangur og keppendafundur verður miðvikudaginn 27. maí nk. hjá BL á Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík frá kl: 18:15 – 20:00. Koma þarf með kvittun fyrir félagsgjöldum ( eða félagsskírteini ) og pappíra fyrir tryggingarstaðfestingu. Hjól VERÐA að vera í lagi, bremsur – öll handföng og grip heil, engir hlutir á hjóli sem gætu skaðað aðra keppendur ( brotin plöst eða handahlífar )
- Skoðun verður einnig á Klaustri föstudaginn 29. maí 2015 kl. 19-21 og laugardag 9–10:30. Eftir það verða engin hjól skoðuð = engin keppni fyrir þá sem koma ekki fyrir 10:30!
- Hvetjum alla sem tök hafa á að koma á Sævarhöfðann n.k miðvikudag og klára sín mál til að flýta fyrir á laugardeginum.
- Ath. að í pittinum á Klaustri er ekki heimilt að gista þe. tjalda eða vera með húsbíla. Sér tjaldstæði verður rétt hjá keppnisbrautinni .
- Til að koma með hjól í skoðun á Klaustri: Ekki er heimilt að gangsetja og keyra á hjólunum, nota skal handaflið sem er jú góð upphitun. Í keppninni og fyrir start skal aka um pittinn í 1. gír. Brot á því kostar 10 mín VÍTI í keppninni.