AÐ: Á aðalfundi VÍK, í kvöld kl 20:00 í húsi ÍSÍ Laugardal, verði boðið uppá kaffi og með því.
AÐ: Þar sem við erum íþróttafélag verði bara heilsusamlegar kleinur á boðstólum.
AÐ: Það stefni í einn fjörugasta aðalfund í manna minnum.
AÐ: Manna minni sé frekar stutt.
AÐ: Menn verði felldir úr stjórn.
AÐ: Aðrir ferskir taki við stjórn.
AÐ: Það vanti samt einn varamann í stjórn.
AÐ: Það verði pottþétt slegist um það sæti.
PS:
Ert þú sá sem ætlar að slást um það sæti?
Við viljum sérstaklega benda á að það er enginn kvenmaður í stjórn VÍK og samkvæmt jafnréttindum og öðrum félagslegum hugsjónum er það okkur að sjálfsöðu til skammar.
Sjáumst í kvöld.