Smellið HÉR fyrir viðburðinn á Facebook.
Núna á SUNNUDAGINN verður skemmtikeppni á Bolaöldusvæðinu. Keyrt verður í tveggja keppenda liðum. Skráning fer fram á staðnum og verður vanur dreginn saman við óvanan keppanda. Allur ágóði fer í að styrkja íslenska landsliðið í motocross-i sem fer á MXoN núna í lok mánaðar.
Brautin verður eitthvað sem þið sjáið ekki á hverjum degi. Hringurinn verður búinn til úr öllum þremur brautunum á svæðinu. Holan, hlíðin og endurocrossbrautin verða settar saman í einn hring. Keyrt verður í 90 mínútur og má hvor ökumaður ekki keyra meira en tvo hringi í einu.
Mæting og skráning verða á staðnum kl. 11:00. Þátttökugjaldið er 5.000 kr.
Keppni hefst 12:00, flaggað verður út 13:30 og kl. 14:00 verður grill fyrir keppendur í boði Snæland.
Ingvi og Eyþór, tveir af þremur liðsmönnum, verða á svæðinu sem og sjoppa.
Mætum, styðjum strákana og skemmtun okkur konunglega.