Skráningu í Álfsneskeppnina lýkur í kvöld (á venjulegu verði). Svo virðist sem sumir eigi í vandræðum með að skilja skráningarferlið svo hér er tékklisti fyrir keppendur:
- Borga félagsgjald
- Velja sér keppnisnúmer
- Skrá sig í réttan flokk og tikka við leigusendi ef þess þarf
- Borga með kreditkorti
- Smella á staðfestingar-link þegar kreditkortið hefur verið samþykkt þar sem stendur Varan er tilbúin í niðurhal.
- Athuga hvort nafnið manns sé á listanum yfir keppendur
- Keppendur fá staðfestingarpóst frá kortafyrirtækinu um að tekið hafi verið af kortinu þeirra
Ef skráningin hefur heppnast er nafnið manns á listanum yfir keppendur. Ef skráningin hefur ekki heppnast þarf að byrja aftur. Lesið leiðbeiningar á hverri síðu fyrir sig.
Ef gleymist að smella á staðfestingarlinkinn er sami linkurinn í póstinum sem er sendur af korta@korta.is sem kvittun
Ef upp koma vandamál má senda póst á vefstjori@motocross.is