Í gær var vinnukvöld í Bolaöldu og tóku nokkur hörkutól til hendinni á svæðinu. Tekið var til á bílastæði, umhverfis húsin og í geymslugámi – lögð var gangstétt – settar niður nokkrar torfur og all nokkur smiðshögg heyrðust innan úr húsinu. Í miðju kafi gæddu menn og konur sér svo á grilluðum pylsum.
MX brautin var hefluð og er því í fínu lagi fyrir þá sem ætla að nýta sér hana í dag!
Njótið vel….!
Stjórnin
…OG MUNIÐ! – Eingöngu þeir sem ERU MEÐ MIÐA Á HJÓLINU mega nota hana ! !
Reglan er einföld: Miði sem er ekki á hjóli hefur sömu stöðu og ókeyptur miði ! !
Og ekki síst sbr. spjallþráðinn hér við hliðina!
1. gír á bílastæðinu eða enn betra að ganga með hjólið í gangi inn í braut/slóða.