Nordic MX-Championship / keppendur

MSÍ sendir 12 keppendur til þáttöku á Nordic MX-Championship 2007 í Uddevalla í Svíþjóð sem fer fram laugardaginn 27. október.
6 keppendur eru skráðir í 85cc flokk, þar á meðal Íslandsmeistarinn Eyþór Reynisson á Honda 150 CRF og Íslandsmeistarinn í 85cc kvennflokk Bryndís Einarsdóttir á KTM 85 SX.
6 keppendur eru einnig skráðir í "OPEN" flokk, þar á meðal Íslandsmeistarinn í meistaraflokk Einar Sigurðarson á KTM 505 SX-F, Íslandsmeistarinn í MX2 Brynjar Gunnarsson á Honda 250 CRF, Íslandsmeistarinn í unglingaflokk Heiðar Grétarsson á Kawasaki 250 KXF og 9 faldi Íslandsmeistarinn .

Ragnar Ingi Stefánsson á KTM 450 SX-F.
Uddevalla Grand Prix brautin í Svíþjóð er ein sögufrægasta Moto-Cross braut Evrópu en þar hefur heimsmeistarakeppnin verið haldin í áratugi. Íslendingunum til aðstoðar í Uddevalla verður heimamaðurinn Martin Dygd sem hefur komið til Íslands nokkrum sinnum til námskeiðahalds síðustu ár. Fulltrúi MSÍ / Mótorhjóla og Snjósleðaíþróttasambands Íslands verður Einar Smárason

 
MSÍ # NorCup # Nafn keppanda:
  85 cc.  
899 41 Eyþór Reynisson
670 42 Bjarki Sigurðsson
365 43 Jón Bjarni Einarsson
99 44 Guðmundur Kort Nikulásson
780 45 Bryndís Einarsdóttir
274 46 Kjartan Gunnarsson
  Open  
4 41 Einar Sigurdarson
270 42 Valdimar Þórðarson
434 43 Brynjar Gunnarsson
900 44 Heiðar Grétarsson
210 45 Freyr Torfason
0 50 Ragnar Ingi Stefánsson
 
með kveðju,
f.h. Stjórnar MSÍ
Karl Gunnlaugsson
GSM: 893-2098

Skildu eftir svar