Aðalfundur Torfæruhjóladeildar Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar verður haldinn fimmtudaginn 25.október. Fundurinn verður haldinn í Álfafelli, íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst kl. 21. Allir félagsmenn deildarinnar eru hvattir til að mæta. Dagskráin verður sem hér segir:
A) formaður íþróttadeildar setur fundinn,
B) kosinn fundarstjóri og fundarritari,
C) formaður flytur skýrslu deildarstjórnar um starfsemi á liðnu starfsári,
D) gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga og gerir grein fyrir fjárhag deildarinnar,
E) kosin stjórn deildar.
(1) formaður,
(2) 2 meðstjórnendur,
(3) 3 menn í varastjórn,
F) kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins.
G) önnur mál