Eins og þeir sem eitthvað fylgjast með fréttum hafa eflaust tekið eftir þá voru nokkrir mótorhjólamenn sóttir upp í Kerlingu, sunnan í Skjaldbreið, um helgina. Ég fór sjálfur á þessar slóðir um helgina og varð frá að hverfa vegna snjóa. Svæðið sunnan
Langjökuls er því ekki enn fært hjólum og gef ég þessu svona 2-3 vikur þanngað til við getum farið að spyrna á slóðum.
Af öðrum svæðum er það að frétta að öll Mosfellsheiðin er þurr, sem og
slóðar á Þingvallasvæðinu. Eyfirðingaleiðin er þurr og greiðfær upp að
Tindaskaga, sem sýnir okkur að um leið og snjórinn er bráðnar verður
stutt í að allt svæðið sunnan Langjökuls opni. Kv. Jakob