Það var alveg frábært veður um helgina og ótrúlega gaman
að komast út að hjóla.
Ekki laust við að manni leið eins og það
væri komið mitt sumar þegar Eyþór #899 kom
brunandi fram úr manni og hefur greinilega engu gleymt.
Mosó brautin er eiginlega í frábæru standi núna og farið að myndast margar
línur í gegnum flestar beygjur, eins má sjá hér á blogginu að Bolaalda hafi verið
mjög skemmtileg um helgina . Um að gera að nýta tækifærið að hjóla
því mér skilst að það eigi að fara kólna aftur seinni part vikunnar.
Brautin í þorlákshöfn var líka mjög góð! þó það megi fara laga uppstökk og lendingr á nokkrum pöllum þarna.
Ég get ekki gert kraftaverk við erum ca. 50 skráðir í klúbbinn en 2-3 sem vinnum alla vinnuna við vorum tveir að smíða nýtt herfi til að slétta brautina öll kvöld vikunnar og kláraði ég það um hádegi á laugardag þar af leiðandi gat ég ekki unnið í brautinni þann daginn ég sléttaði brautina svo á sunnudaginn og týndi úr henni grjót þetta tók tæpa fjóra tíma og þá var komið fólk að hjóla þannig að ég gat ekki farið á gröfunni inní brautina en ef ég finn nokkra daga í viðbót í vikunni þá skal ég reyna að gera þetta allt líka.
Kv. Sindri Þorlákshöfn
ps. þetta er allt gert í sjálfboða vinnu fyrir allt hjólafólk í landinu með kreppukveðju Sindri
Sæll Sindri, er ekki að setja út á þetta hjá ykkur alls ekki. Finnst þetta frábært starf sem þið eruð að gera þarna, mjög svo og eigiði mikið hrós skilið! Bara að benda á að uppstökkin og lendingarnar hafi verið farnar að slitan. Er staðráðinn í að mæta um leið og ég get en mér tókst að brjóta á mér ökklann síðasta sunnudag í brautinni.
Kv,
Sibbi
Ég tók þessu heldur ekkert illa hjá þér og vona að þú náir þér.
Kv. Sindri