Á fimmtudagskvöldið verður gerð tilraun með að keyra næturmotocross í Bolaöldubrautinni. Þeir sem prófuðu brautina um helgina voru gríðarlega ánægðir með aðstæður og skemmtu sér frábærlega. Við erum búnir að fá lánaðar tvær ljósakerrur sem lýsa brautina mjög vel upp í snjónum. Garðar mætir snemma og fer yfir brautina eftir þörfum og gerir húsið og kaffið klárt.Nú er bara að mæta með trella/karbíta undir hjólunum og láta vaða. Miðarnir fást í Litlu kaffistofunni – sjáumst annað kvöld.
2 hugrenningar um “Næturmotocross í Bolaöldu á fimmtudagskvöldið kl. 20”
Skildu eftir svar
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.
hvert fara menn á venjulegum dekkjum að hjóla hvernig er sandvík má hjóla þar?
Henntu bara haug af skrúfum í dekkið og hjólaðu í bolöldu það er klikkað gaman. Annas er það Þorlákshöfn eða Þykkvabær http://www.fjaran.com bara muna að borga.