Aðalfundur VÍK var haldinn í gærkvöldi, 25. mars. Framkvæmd voru helstu aðalfundarstörf s.s. farið yfir reikninga og skýrslu stjórnar og kosið í nefndir og stjórn. Tveir nýir menn bættust í stjórn, þeir Hrafn Guðbergsson og Ólafur Þór Gíslason en Kristján A. Grétarsson vék úr stjórn. Hrafnkell Sigtryggsson var endurkjörinn formaður eins og aðrir stjórnarmenn. Skýrsla stjórnar, reikningar félagsins, fundargerð aðalfundar og helstu atriði fundarins má lesa hér. Ágæt mæting var á fundinn og sköpuðust góðar umræður í lok fundarins.