Eins og alltaf þá verða ólögráða keppendur að framvísa þátttökutilkynningu undirritaðri af foreldri/forráðamanni við skoðun hjóls. Eyðublöð verða til taks á morgun en einnig má prenta út neðangreindan texta og koma með það tilbúið á morgun.
Þátttökuyfirlýsing vegna keppni í vélhjólaakstri
sem fram fer þ. 16 / maí /2009
Undirritaður keppandi lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um keppnina og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja keppninni og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur keppnishaldara, keppnisstjóra, landeiganda né heldur starfsmanna keppninnar vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni – hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.
______________________________________ ___________________ _____________
Nafn keppanda Kennitala Keppnisnúmer
(vegna keppanda sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður keppanda samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.
_____________________________________ _____________________
Nafn forráðamanns Kennitala