Fyrsti krakkadagur sumarsins fyrir yngri en 12 ára hjá Vélhjólaíþróttafélagi Reykjaness verður sunnudaginn 21.júní kl. 13.00 á Sólbrekkubraut – ef næg þátttaka verður.
Keyrt verður í 3 flokkum 50cc, 65cc, og 85cc 2 x 10 mín hver flokkur. Foreldrar verða virkjaðir á pallana í flöggun eins og á síðasta ári. Öll önnur aðstoð vel þegin.
Allir þáttakendur fá viðurkenningu. Frítt er í brautina og í lokin verður grillað o.s.frv.
Muna að mæta í fullum öryggisbúnaði, hjólin í lagi taka með góða skapið og hafa gaman af og skemmta okkur með púkunum okkar.
Allir krakkar geta tekið þátt sama í hvaða félagi þeir eru.
Við viljum koma á framfæri að VÍR ætlar að standa fyrir unglingadegi í sumar fyrir 12 ára og eldri og verður hann auglýstur síðar.
Vinsamlegast látið vita um þátttöku á rm250cc@simnet.is eða erlavalli@hotmail.com
kveðja, Púkaforeldrar í VÍR.
Djöfull er þetta flott. Halda þessu áfram 🙂
Skráningin gengur vel. Hvetjum ykkur sem hafa ekki skráð sig enn að gera það sem fyrst. Skráningunni líkur á miðnætti í kvöld 20/6. Mikil tilhlökkun er fyrir þessum fyrsta krakkadegi ársins hjá VÍR og margir búnir að bíða spenntir.