VÍK ætlar að standa fyrir byrjendadegi á laugardaginn á milli kl. 10 og 13.
Þá býðst öllum sem ekki hafa keyrt stóru brautina eða treysta sér ekki til að keyra á venjulegum opnunartíma tækifæri til koma og prófa að keyra brautina án truflunar frá þessm vönu keyrurum sem keyra brautina alla daga á ofurhraða, eða að því virðist. Hugmyndin er að skipta þeim sem mæta í stærri hjól (125+) og minni hjól (65-85cc ) og skipta þeim svo inn í brautina á 15 mínútna fresti þannig að hvor hópur eigi sínar 15 mínútur í einu. Kl. 10-10.15 væru t.d. minni hjólin í brautinni – 10.15-10.30 væru stærri hjólin inn á og svo framvegis til kl. 13. Einar Sigurðarson o.fl. verða á staðnum og gefa góð ráð og leiðbeiningar um keyrslu í braut fyrir alla sem vilja. Svo má minna á motocrossæfingar VÍK sem hafa verið mjög vel sóttar og reyndar er nánast fullt í yngri hópana, mögulega getum við þurft að bæta við fleiri æfingahópum. Enn eru laus pláss hjá Össa og Aroni fyrir þá sem eru á stærri hjólum (125-250 og stærra).
Brautin verður því lokuð öllum öðrum en byrjendum á laugardagsmorguninn en opnar aftur fyrir alla kl. 13. Munið eftir miðunum sem fást hjá Olís eða kaffistofunni – góða skemmtun.