Það var hörku fjör hjá þeim sem voru að tæta og trylla í Bolaöldubrautinni í dag, það ringdi á stöku stað svona rétt til þess að hafa gott rakastig í brautinni. Öll uppstökk og lendingar eru í frábæru standi og er varla hægt að hafa brautina betri. Það voru allar gerðir af ökumönnum í brautinni allt frá byrjendum upp í nokkuð góða, en þó var lítið um topp ökumennina. Sennilega flest allir búnir að missa sig í kökur og sælgæti eftir að keppnistímabilinu lauk. Humm nei það getur ekki verið, hlýtur að vera almenn leti enda ýmislegt framundan í sportinu, bikarkeppnir á víð og dreif hér og þar um landið. Einnig gæti síðasta endurokeppni sumarsins, sem var haldin á Akureyri í gær, spilað þar inní.
Ég smellti nokkrum myndum af frískum hjólurum.