Garðar vill koma því á framfæri að allar brautir eru í frábæru ástandi. Veðrið er frábært og þeir fáu pollar sem voru á svæðinu í gær ættu að vera farnir um miðjan dag. Hann var sveittur í allan gærdag að fara yfir brautirnar!!! Allt fyrir okkur hjólarana.
Einnig er Garðar búinn að vera að vinna töluvert í barnabrautinni, nú er kominn þar rosa flottur pallur með 20 metra lendingu. Þetta ætti að kæta alla byrjendur/ börn.
Höfum gaman saman á Bolaöldusvæðinu. Nýtum dag eins og þennann, það verða ekki margir svona dagar í viðbót.