Á morgun þriðjudag, 27. október, heldur Ferða og útivistarfélagið Slóðavinir sinn árlega aðalfund. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, en eftir fundinn verða þrjár stuttar kynningar (sjá nánar hér að neðan). Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins og því mikilvægt að félagsfólk mæti og láti skoðanir sýnar í ljós. Um þessar mundir eru blikur á lofti varðandi aðkomu ferðafólks að mikilvægum málefnum sem snerta ferðafrelsi og skipulagsmál og því einboðið að á komandi misserum þurfa hagsmunasamtök ferðafólks að láta til sín taka. Aðalfundur er því kjörið tækifæri fyrir félagsfólk til að koma skoðunum sínum á framfæri við kjörna fulltrúa félagsins og aðstoða við að móta starfið sem er framundan.
Aðalfundur 2009
Aðalfundur Ferða og útivistarfélagsins Slóðavina verður haldinn þriðjudagskvöldið 27. október í Bændahöllinni (Hótel Saga). Gengið er inn til móts við Þjóðarbókhlöðunni (norðurendi), lyftan tekin upp á 3.hæð og þá er salurinn á hægri hönd.
Fundurinn hefst kl. 20:00, í lok fundar er boðið upp á kaffiveitingar. Eftir kaffihlé verður fluttar þrjár stuttar kynningar.
Dagskrá:
- Setning fundar og dagskrá kynnt.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Umræða um skýrslu stjórnar
- Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
- Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
- Skýrsla nefnda – tölvunefnd greinir frá vinnu sinni eftir kaffihlé.
- Tillögur/lagabreytinga – Engar lagabreytingar hafa borist.
- Kjör stjórnar og varamanna.
- Kjör tveggja skoðunarmanna.
- Önnur mál.
- Fundarslit
Skv. 5. grein laganna: „Ár hvert skal formaður kosinn sérstaklega til eins árs. Auk þess skulu kosnir tveir meðstjórnendur til tveggja ára. Kjósa skal einn varamann fyrir hverja tvo meðstjórnendur sem kosnir eru á sama aðalfundi.“
Rétt til setu á aðalfundi hafa einungis þeir sem hafa staðið full skil á gjöldum til félagsins [3.gr. laganna].
Dagskrá eftir kaffihlé
Styrkur til góðra verka – Í sumar styrkti félagið tvö verkefni til góðra verka. Styrkþegar kynna verkefni sín á fundinum. Annars vegar styrkti félagið ferðalag Jóns Gunnars Benjamínssonar sem fór á fjórhjóli þvert yfir hálendi Íslands. Jón Gunnar er lamaður eftir slys og var ferðin m.a. farin til að vekja athygli á aðgengismálum fatlaðra á hálendinu. Hins vegar fékk Hjörtur L. Jónsson styrk til að koma af stað fjölskyldubraut fyrir mótorhjól í landi Hofs í Vatnsdal. Á Hofi er rekin ferðaþjónusta og var verkefnið hluti af tilraun til að auka þjónustu við mótorhjólafólk.
Ferlar á vefnum. Frá því í vor hafa nokkrir framkvæmdaglaðir Slóðavinir unnið að gerð heimasíðu sem hefur það hlutverk að miðla upplýsingum um staðsetningu og gerð slóða. Á fundinum verður verkefnið kynnt.
Félagar eru hvattir til að mæta
Lög félagsins má nálgast á heimasíðu félagsins, www.slodavinir.org