Þar sem farið er að kólna og keppnir búnar í bili þá fer vetrarstarf AÍH að hefjast. Við höfum ákveðið að hittast á miðvikudagskvöldum í byrjun mánaðar í 1-2 klst. í Álfafelli í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Álfafell er stóri salurinn á annarri hæð og er gengið inn um gaflinn. Á fyrsta kvöldinu okkar, sem er miðvikudagurinn 5. október, munu Jón og Kári íslandsmeistari í Endúró heimsækja okkur og kynna vöruúrvalið sem JHM Sport hefur uppá að bjóða. Trials hjól verður í salnum ásamt öðru góðgæti. Nú einnig verður hressing á staðnum. Frábært tækifæri til að hittast spjalla saman eftir kynninguna. Hvetjum alla til að mæta stundvíslega kl. 20 og verður húsið opið til kl. 22.