Skagamenn fengu heimild til æfinga á Langasandi í dag. Góð mæting var á sandinn enda var veðrið frábært sem og sandurinn. Það var búið að græja smá stökkpall og nokkrar vúbbsur. Braut var stikuð út með keilum sem var bæði í lausa og þétta sandinum.
Það var mikið fjör hjá öllum þeim sem voru á sandinum. Það voru teknar nokkrar léttar æfingar enda næginlegt pláss til að gera ýmislegt skemmtilegt. Það er frábært að geta fengið aðgang að svona aðstöðu til hjólaiðkunar og það er öfundsvert að hafa svona innanbæjar.
Takk fyrir skemmtilegann dag, Skagamenn.